Leita í fréttum mbl.is
Embla

Íhaldið brosir ráðvillt til vinstri

Undarlegasta uppákoman í íslenskum stjórmálum á síðasta ári var myndun ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.

(Endurbirt grein af gefnu tilefni) 

Allt síðasta kjörtímabil horfði þjóðin á Samfylkinguna halda því á lofti að hún væri stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn og höfuðandstæðingur Sjálfstæðisflokksins. En svo gerðist það eins og hendi væri veifað að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lét skutla sér og stækum vinstri-, alþjóðavæðingar- og þjóðleysisflokk sínum austur á Þingvöll beint í faðm borgaralega flokksins sem hingað til og stundum með réttu, - hefur reynt að kenna sig við sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Svo bregðast krosstré sem önnur tré, hugsaði ég þá um Sjálfstæðisflokkinn.

Þetta voru vonbrigði því að þarna voru aðrir kostir í stöðunni. Sá augljósasti að mínu mati, var sá að mynduð yrði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Frjálslynda flokksins. Þessi stjórn hefði haft öruggan þingmeirihluta, eða 36 af 63 þingmönnum.

Því miður var ekki látið reyna á þennan möguleika. Í honum fólst og felst myndun hófsamrar, framfarasinnaðrar og frjálslyndrar borgaralegrar ríkisstjórnar gegn vinstri öflunum í landinu. Samfylkingin hefði verið sett út fyrir sviga eins og hún átti skilið eftir að hafa beðið herfilegan kosningaósigur og fylgistap í vor, miðað við úrslitin 2003. Að stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn skyldi "afreka" að tapa rúmlega fjórum prósentum eftir öll sóknarfærin á síðasta kjörtímabili var háðuleg útreið sem réttilega hefði kostað forystu Samfylkingarinnar sæti sín hefði lífgjöfin ekki borist frá Geir Hilmari Haarde og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur.

Með því að mynda ríkisstjórn með Samfylkingunni þá sýndi núverandi forysta Sjálfstæðisflokksins að hún hefur hvorki metnað né getu til að standa í ístaðinu og tryggja að flokkurinn verði áfram það afl sem hann var í íslenskum stjórnmálum, það er sem helsti merkisberi borgarlegra viðhorfa hér á landi. Í staðinn er Sjálfstæðisflokkurinn lagður af stað í þá vegferð að daga uppi sem sósíaldemókratískt viðundur bundið vinstra megin á klafa íslenskra stjórnmála.

Samfylkingin undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hefur hins vegar á örfáum mánuðum náð vopnum sínum fyrir tilstilli forystuteymis Sjálfstæðisflokksins. Ég átti von á því að Samfylkingarinnar biðu þau örlög að verða undir í núverandi ríkisstjórn, svona svipað og gerðist með Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn sáluga í faðmlögum við gamla Íhaldið. 

En þetta hefur allt snúist óvænt við í vetur. Vendipunkturinn var þegar Sjálfstæðisflokkurinn glutraði meirihlutanum í Reykjavíkurborg úr höndum sér. Nú er það Samfylkingin sem hefur frumkvæðið í höndum sér þegar stjórn Íslands er annars vegar. Ráðherrar og þingmenn Sjálfstæðisflokksins virka hálf lömuð og utangáttra. Þau eru lítt sýnileg á meðan þinglið Samfylkingarinnar blómstrar af sjálfstrausti hvern einasta dag, vitandi að þau geta hvenær sem er hent Íhaldinu fyrir róða og myndað stjórn með Vinstri grænum og Framsókn, og þar með rústað Sjálfstæðisflokknum.

Og á meðan þessu stendur berst lykt af deilum og klofningi úr Valhöll. Augljóst er að sú ákvörðun forystu Sjálfstæðisflokksins að ganga til ríkisstjórnarsamstarfs með Samfylkingunni hefur haft hroðalegar afleiðingar fyrir fyrrnefnda flokkinn, sem enn eru aðeins komnar í ljós að hluta. Samfylkingin hefði til að mynda aldrei náð að beita sér að því að fella meirihlutann í Reykjavík ef Framsókn hefði verið áfram í ríkisstjórn og Samfylkingin fyrir utan. Málsmetandi fylkingar innan Sjálfstæðisflokksins virðast gersamlega hafa tapað sér í glórulausu rugli þar sem deilt er um með hvorum vinstri flokknum sé nú rétt að vinna í meirihlutastjórnmálum hér á landi.

Ég horfi á þetta í undrun og kemst að þeirri ályktun að Íhaldið sé nú að missa fótana.

Birtist sem kjallaragrein í DV 9. janúar


mbl.is Fundað í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég tek undir með þér Magnús að íhaldið er að missa fótana, en ég er ekki sammála þér með hvers vegna þeir eru svona væskilslegir í dag.

Samfylkingin á ekki "sök" á því þótt ekki væri mér það á móti skapi. Ég tel ástæðu afhroðs sjallana undanfarð vera vegna þess að sjálfstæðisflokkurinn er forystlaus og sundurleitur eiginhagsmunapotaflokkur og almenningur er farinn að átta sig á þeim.

Ég vona að samfylkingin sprengi ríkistjórnina flj+otlega.

Óskar Þorkelsson, 2.2.2008 kl. 12:56

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Óskar, það væri allavega eitt sem mögulega tækist hér á suðurlandi, hugsanlega fyndum við þingmann, en þannig er nú farið með þá sem kosnir voru síðast að þeir eru týndir og Árni Math. fluttur aftur af suðurlandi þar sem hann bjó í um 30 daga eða svo eða ca. eina kosningabaráttu.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 2.2.2008 kl. 13:39

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Magnús. Alveg talað eins og úr mínu  hjarta. Í bloggi mínu í gær
um vnda Framsóknar kem ég inn á þessi mál og velti fyrir mér
hvað til ráða er fyrir okkur sem aðhyllumst ÞJÓÐLEG, BORGARASINNUÐ
og KRISTIN VIÐHORF.  Öll þessi gildi sem flokksforysta Sjálfstæðis-
flokksins er að grafa undan í dag. Stórir hópir kjósenda sem aðhyllast
þessi GRUNNGILDI í pólitík og sem ég nefndi eru að verða lang-
þreyttir.  Fer ekki að skapast jarðvegur fyrir fjöldahreyfingu þarna á
mið/hægri-kannti íslenzkra stjórnmála? Tækifæri fyrir HEILSTEYPTAN
þjóðlegan íhaldsflokk sem væri hægt 100% að TREYSTA að gæfi
ALDREI afslátt á þessum grunngildum!  Sæi m.a þig Magnús þar í
forystusveit....

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 2.2.2008 kl. 13:53

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er bara hið besta mál ef fólk er loksins að átta sig á Sjálfstæðisflokknum og grímunni sem hann hefur haldið uppi um ímynd sína, og þó fyrr hefði verið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2008 kl. 16:54

5 Smámynd: Vigfús Davíðsson

Þið gangið öll í Sjálfstæðisflokkinn, þegar hann þurrkast út í næstu kosningum.Enda er þetta bara brot úr honum.Það voru mistök hjá ykkur að taka hann Jón Magnússon  og hans lið inn í Frjálslindaflokkinn.

Vigfús Davíðsson, 2.2.2008 kl. 18:14

6 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég er núþegar í Sjálfstæðisflokknum og skammast mín bara ekkert fyrir það.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 2.2.2008 kl. 23:49

7 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Held að ég sé allt of mikið ÞJÓÐLEGT ÍHALD til að ganga í Sjálfstæðisflokkin. Allavega meðan núverandi krataforysta ræður þar
ríkjum.

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 3.2.2008 kl. 00:36

8 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Mér sýnist og heyrist nú á ýmsum yfirlýsingum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur á fundi í Valhöll í gær, að hún eigi helst heima í Samfylkingunni.

Magnús Þór Hafsteinsson, 3.2.2008 kl. 12:24

9 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Og manni heyrðist á Birni Bjarna í Silfrinu að hann vildi helst "sænga"hjá Kartrínu Jakobs og Svandísi

Ólafur Ragnarsson, 3.2.2008 kl. 20:45

10 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ólafur reið með björgum fram....

Það er bara ekki einleikið hvað þessi gamli vikivaki sækir á hugann þessa dagana.

Ég held að þessi borgarstjórnarmál eigi eftir að setja margar góðar áætlanir í uppnám.

Og hvenær kemur REY skýrslan hennar Svandísar?

Ein gáfulegasta pólitíska ályktun síðari tíma kom frá Gunnari Smára Egilssyni í Silfrinu í dag. Og hún var eitthvað á þá lund að íslenskir stjórnmálamenn hefðu ekkert gert af viti svo langt sem hann mundi. Þetta væri bara ónýtt fólk.

Það skyldi þó aldrei vera? 

Árni Gunnarsson, 3.2.2008 kl. 22:03

11 Smámynd: Magnús Þór Hafsteinsson

Ég spái því að linnulaus sjálfsmörk og vandræðagangur í borgarpólitíkinni og þetta samstarf við Samfylkinguna í ríkisstjórn eigi eftir að kosta bæði Geir H. Haarde og Þorgerði Katrínu forystusætin í Sjálfstæðisflokknum.

Og Gunnar Smári var með góðan punkt í Silfrinu í dag þegar hann minntist á hina misheppnuðu "fiskveiðistjórnun" sem Sjálfstæðisflokkur ber höfuðábyrgð á. Það er nefnilega graf - graf - alvarlegt mál sem fáir þora að tala um.

Magnús Þór Hafsteinsson, 3.2.2008 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Þór Hafsteinsson
Magnús Þór Hafsteinsson

Bloggvinir

Sögulegar ræður

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband