Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Þriðjudagur, 3. janúar 2012
Hvað með forsetakosningar?
Mér finnst það verði nú meira spennandi að sjá hve mörg munu bjóða sig fram til forseta.
Um 500 manns buðu sig fram til stjórnlagaþings.
Samkvæmt öðrum kafla stjórnarskrárinnar er hver 35 ára gamall maður, sem fullnægir skilyrðum kosningarréttar til Alþingis, að fráskildu búsetuskilyrðinu kjörgengur til embættis forseta. Búsetuskilyrðið gengur út á það að forsetaframbjóðandi skal hafa lögheimili á Íslandi. Frambjóðandinn þarf að útvega að minnsta kosti 1.500 undirskriftir meðmælenda, en þó ekki fleiri en 3.000.
Þetta er nú allt og sumt sem þarf til að fara í forsetaframboð.
Eðli kosningabarátta hefur breyst mikið og mjög hratt á undanförnum árum. Netið skiptir æ meira máli og þar er hægt að gera mjög margt án þess að það þurfi að kosta mikið. Þetta kom ágætlega í ljós í kosningunum til stjórnlagaþings.
Frambjóðendur til forsetaembættis gætu hæglega orðið mjög margir. Það er einungis ein umferð í kosningunum og sú persóna hreppir hnossið sem fær flest atkvæði. Þá skiptir engu máli hvort það eru 60% atkvæða, 40% eða bara 5%.
Hver og einn frambjóðandi fær sína fimm mínútna frægð í fjölmiðlum og víðar - og fær nafn sitt skráð á spjöld sögunnar.
Kosningarnar gætu hæglega orðið mjög alþýðlegar.
Það yrði gaman.
------------------------
Ítarefni:
Lög um framboð og kjör forseta Íslands
|
Mörg framboð til marks um óánægju |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 3. janúar 2012
Lestur úr Dauðanum í Dumbshafi
Nú fyrir jól las ég úr bók minni Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943, á Útvarpi Sögu.
Ég útbjó til gamans smá myndband með upptöku af lestrinum og smá inngangi og eftirmála - það er ég myndskreytti upptökuna.
Þetta má með því að smella hér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. desember 2011
Íshafsskipalestirnar: Tími á nýja nálgun
Í inngangi bókar minnar Dauðinn í Dumbshafi (bls. 12), skrfa ég eftirfarandi:
"Skipalestirnar, sem sigldu milil Hvalfjarðar og Norðvestur-Rússlands, hafa af einhverjum orsökum aldrei fengið þann sess í Íslandssögunni sem þær eiga svo fyllilega skilið. Kannski er orsökin margþætt. Þessar siglingar voru mikið leyndarmál á sínum tíma. Stöng öryggisgæsla var í tengslum við þær. Sjómenn fengu ekki að fara í land af ótta viðað gáleysislegt tal þeirra næði eyrum einhverra sem gætu verið vinveittir Þjóðverjum. Sömuleiðis var Hvalfjarðar vandlega gætt. Ljósmyndatökur voru alfarið bannaðar. Bandamenn óttuðust alltaf að njósnarar væru á Íslandi. Íslenskir fjölmiðlar virðast hafa verið stranglega ritskoðaðir. Engar fregnir virðast hafa verið fluttar hér á landi af siglingum þessara skipalesta eða afdrifum þeirra, jafnvel þótt Þjóðverjar til að mynda gerðu mikið úr því greina frá því þegar þeir unnu sigra sína gegn þeim.
Nokkrar blaðagreinar hafa birst í íslenskum tímaritum og dagblöðum en þær eru í raun ótrúlega fáar og hafa birst á margra áratuga tímabili. Að sama skapi er ekki mikið um heimildir í bókum um sögu hernámsins sem hafa komið út hér á landi þótt aðeins hafi ræst úr á seinni árum. Þögnin um Íshafsskipalestirnar kann að stafa af því að fátt er um samtímaheimildir á íslensku þar sem fjölmiðlarnir voru ritskoðaðir. Auk þess var framkvæmd siglinganna alfarið á ábyrgð Breta og Bandaríkjamanna en íslensk stjórnvöld komu ekki nærri. Síðan má velta fyrir sér hvort gamaldags kaldastríðshugsunarháttur hafi ráðið ríkjum. Að það hafi hreinlega ekki þótt rétt að hampa því um of að Ísland gegndi lykilhlutverki sem bækistöð við að koma aðstoð frá Bretum og Bandaríkjamönnum til herafla Sovétríkjanna þegar útlitið var hvað tvísýnast á árunum 1941 og 1942."
Það er löngu kominn tími til að breyta þessu, og finna nýja nálgun á hlutverk Íslands í seinni heimsstyrjöldinni. Ég fer aðeins yfir mikilvægi þessara siglinga hér í þessu myndbandi:
Það
Fimmtudagur, 1. desember 2011
Bók mín Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar
Íshafsskipalestirnar sigldu milli Íslands og Norðvestur Rússlands í seinni heimssstyrjöld með hergögn frá Bretum og Bandaríkjamönnum til Rauða hers Sovétríkjanna sem barðist upp á líf og dauða gegn innrásarherjum Þjóðverja og bandamanna þeirra.
Ef smellt er hér, opnast vefgátt þar sem fletta má sýnishorni af bókinni (ýta á "click to read"):
Í gær fór ég til Bessastaða á fund Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands og afhenti honum fyrsta eintakið af bókinni.
Með í för voru Helgi Magnússon sagnfræðingur sem hafði umsjón með útgáfu verksins og Gunnar Kr. Sigurjónsson sem hannaði bókina og braut hana um.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti er að að öðrum ólöstuðum sá íslenski ráðamaður sem hefur sýnt sögu Íshafsskipalestanna mestan áhuga.
Hann hefur heiðrað minningu þessarar sögu og fólksins sem tók þátt með ýmsum hætti á liðnum árum þó það hafi kannski ekki alltaf farið hátt hér á landi, enda saga Íshafsskipalestanna til þessa lítt kunn Íslendingum.
Forsetinn fagnaði bókinni og við áttum klukkutíma fund í bókastofu Bessastaða þar sem við ræddum sögu Íshafsskipalestanna, málefni Norðurslóða og hlutverk og stöðu Íslands í norðrinu, bæði í fortíð, nútíð og framtíð. Ólafur hefur næman skilning á því að hlutverk og þýðing Íshafsskipalestanna var miklu veigameira en hingað til hefur almennt verið talið, og þær höfðu mikil áhrif á gang mála á einum mestu örlagatímum í sögu mannskyns.
|
Forseti Íslands í bókastofunni á Bessastöðum með fyrsta eintakið af bókinni Dauðinn í Dumbshafi sem ég færði honum þegar bókin kom út 30. nóvember 2011(ljósmynd og myndband:Friðþjófur Helgason). |
Fyrr í vikunni var svo fjallað um bókina í Kastljósi, þar sem Jóhannes Kristjánsson fréttamaður ræddi við mig um hana. Á undan voru sýndar kvikmyndir úr Hvalfirði og af skipalest á leið þaðan til Norðvestur Rússlands sem aldrei hafa sést opinberlega hér á landi fyrr. Einnig voru sýndar margar ljósmyndir.
Þessa umfjöllum Kastjóss má sjá með því að smella hérna.
Bókarverkefnið Dauðinn í Dumbshafi er með eigin síðu á Facebook. Sú síða er öllum opin sem á annað borð eru tengd á Fésbókina. Á henni má finna ýmsan fróðleik, ljósmyndir og annað, sem tengist sögu Íshafsskipalestanna og hernaðarins á heimskautsslóðum Atlantshafsins.
Það er von mín að þessi bók megi verða til þess að þessari miklu sögu verði gefinn nánari gaumur í framtíðinni. Gleðilegan fullveldisdag 1. desember!
Létt myndband sem sýnir þegar ég gekk á fund forseta Ísands og afhenti honum bókina:
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 12. maí 2010
Íhaldið mælist of hátt
Ég efast stórlega um að Sjálfstæðisflokknum takist að draga inn 25 prósenta fylgi á Akranesi. Það er miklu meira en sá listi sem flokkurinn býður nú fram, á nokkru sinni skilið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar ættu einnig að svara nokkrum vandasömum spurningum til að sýna fram á að þau séu verðug þess trausts sem þessi skoðanakönnun gefur til kynna. Ekki hafa öll verk Samfylkingarinnar á þessu kjörtímabili hér á Akranesi verið þess eðlis að ætla megi að sá flokkur starfi ávallt með hagsmuni og velferð íbúa Akraness að leiðarljós.
Hér fyrir neðan eru hlekkir á tvo pistla sem ég hef skrifað hér nýverið og tengjast bæjarmálum á Akranesi. Smellið á titlana til að lesa. Í pistlunum eru svo hlekkir á ýmislegt annað ítarefni:
Akranes: 5,528 prósent af 241 milljarði...
Þetta er mjög há tala; - en hvað með Akranes?
|
Samfylkingin bætir við sig á Akranesi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Mánudagur, 7. apríl 2008
Farinn á Eyjuna
Sælt veri fólkið.
Ég hef flutt mig um set á mitt eigið vefsetur sem birtist einnig á www.eyjan.is
Slóðin þangað er http://magnusthor.is
Góðar stundir,
MÞH
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.3.2009 kl. 12:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 25. febrúar 2008
Áfram veginn! - Heimir og Stefán Íslandi
Um helgina var ég svo heppinn að upplifa minnistæðan tónlistarviðburð.
Nei, ég er ekki að tala um Þursatónleikana í Laugardalshöll.
Ég er að tala um tónleika með karlakórnum Heimi úr Skagafirði. Þeir heimsóttu okkur á Akranesi á laugardagskvöld og héldu tónleika í Tónbergi, glæsilegum tónlistarsal hins glænýja Tónlistarskóla á Akranesi.
Kórinn flutti sérstaka dagskrá um verk og ævi hins skagfirska stórsöngvara Stefáns Íslandi. Í ár er hundrað ára ártíð hans.
Þetta er ákaflega vel heppnað í alla staði. Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri og gamall bekkjarbróðir minn frá Bændaskólum á Hólum hefur skrifað mjög gott handrit eins og hans var von og vísa, sem þeir Agnar Gunnarsson á Miklabæ og Hannes Örn Blandon á Laugalandi í Eyjafirði fara með af stakri list.
Síðan flytur kórinn og einsöngvarar lög sem tengjast ferli Stefáns Íslandi.
Þetta er í einu orði sagt frábær sýning. Næst fer kórinn austur á land til að halda tónleika á Egilsstöðum og á Eskifirði.
Austfirðingar ættu alls ekki að missa af þessu!
Mæli hjartanlega með. Takk fyrir mig.
Áfram veginn!
Föstudagur, 22. febrúar 2008
X D hefur leiftursókn gegn X S
Hér er meira grín sem ég má til með að birta í tilefni ástandsins á stjórnarheimilinu.
Nú er það atriði úr þættinum "Blackadder Goes Back & Fort". Frakkar eru Íhaldið. Ónefndur þingmaður Sjálfstæðisflokksins (Greifinn af Darling) kemur ríðandi úr Kastljósþætti á fund foringja síns (Napóleons) og tilkynnir að Bretar (Samfylking) séu komnir til Waterloo.
Napóleon gefur skipun um að undirbúa árás, og þá hefjast kostuleg orðaskipti þegar Duke de Darling spyr Napóleon hvers vegna ráðast eigi á Breta? Þau eru mjög fyndin í sjálfu sér, en verða enn hlægilegri þegar maður sér fyrir sér hina veiklulegu Sjálfstæðisflokksforystu.
"With respect my emperor, we are wipsies - we inventend the tapestries, the suffle and the sweet liquor. We will be slaughtered the minute we mince up the hill".

Fimmtudagur, 21. febrúar 2008
Mamma þín var hamstur
Eftir uppákomur kvöldsins þar sem hinn hugumprúði riddari Sigurður Kári Kristjánsson mætti þeim Merði Árnasyni og Lúðvíki Bergvinssyni Samfylkingarmönnum í sjónvarpsumræðum, er ljóst að nú er hlegið að Sjálfstæðisflokknum svo glymur um landið og miðin.
Það hvarlar ekki að Samfylkingunni að sýna snefil af iðrun vegna árásar iðnaðarráðherrans í ríkisstjórn Íslands á óbreyttan borgarfulltrúann Gísla Martein í Reykjavík.
Samfylkingin hlær sig máttlausa af Íhaldinu þegar það sér ekki til. Vinstra liðið gerir allt sem í þeirra valdi stendur í skæruliðastarfsemi sinni gegn erkióvininum í Íhaldinu. Markmiðið er augljóst. Samfylkingin er búin að gera sér grein fyrir veikleikum Sjálfstæðisflokksins sem felast í því að Íhaldið er of aumt til að svara fyrir sig. Og hirð Ingibjargar Sólrúnar notfærir sér þá (veikleikana) til hins ítrasta.
Þetta farsakennda samstarf flokkanna tveggja minnir æ meir á fáránlega gamanmynd í stíl Monty Python.
Atriðin sem skoða má hér fyrir neðan eru eins og úr handriti að þeim atburðum sem nú eiga sér stað. Það er þegar riddarar hringborðsins (Sjálfstæðismenn) koma að kastala Frakkanna sem hafa tögl og halgdir innan borgarmúranna (hin Evrópusinnaða Samfylking með undirtökin í ríkisstjórn). Þar er þeim er mætt með fúkyrðaflaum, háði, spotti og árásum þar sem allt er látið flakka.
"Your mother was a hamster and your father smelt of eldeberriers - I fart in your general direction"

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Fimmtudagur, 21. febrúar 2008
Afar áríðandi skilaboð frá næsta forseta USA
Minn maður - Áfram ÍA!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggvinir
-
Andrés.si
-
Nói Blomsterberg
-
Baldur Fjölnisson
-
Birna M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Einar Örn Einarsson
-
Ellert Smári Kristbergsson
-
Friðrik Óttar Friðriksson
-
Fríða Björk Einarsdóttir
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Gils N. Eggerz
-
Grétar Ómarsson
-
Gunnar Freyr Hafsteinsson
-
Guðmundur Björn
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Gísli Sigurðsson
-
Gústaf Níelsson
-
Halldór Jónsson
-
Hans Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Heimssýn
-
Heiða Þórðar
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Högni Páll Harðarson
-
Inga Lára Helgadóttir
-
Ingimundur Kjarval
-
Jakob Jörunds Jónsson
-
Jakob Þór Haraldsson
-
Jens Sigurjónsson
-
Jóhann H.
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóhannes Ragnarsson
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Kristján H Theódórsson
-
Kristján Pétursson
-
Margrét St Hafsteinsdóttir
-
Mál 214
-
Pjetur Stefánsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Pétur Guðmundur Ingimarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Rúnar Karvel Guðmundsson
-
S. Einar Sigurðsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir
-
Sigrún Jóna
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sverrir Stormsker
-
Sævarinn
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Valdimar Samúelsson
-
Valgeir Bjarnason
-
Vilhjálmur C Bjarnason
-
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
-
gudni.is
-
veffari
-
Ágúst Bjarni Garðarsson
-
Árni "Gamli" Einarsson
-
Ársæll Níelsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
-
Ólafur Björn Ólafsson
-
Ólafur Hannesson
-
Ólafur Jónsson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur fannberg
-
Óskar Helgi Helgason
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórbergur Torfason
-
Þórir Kjartansson
-
Arinbjörn Kúld
-
Baldur Hermannsson
-
Birgir R.
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kjartansson
-
Egill Jóhannsson
-
Eyþór Arnalds
-
Grétar Rögnvarsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Gunnar Waage
-
Halldór Halldórsson
-
Hamarinn
-
Haraldur Bjarnason
-
Haraldur Haraldsson
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Ingvi Rúnar Einarsson
-
Jóhann Elíasson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kristinn Karl Brynjarsson
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Kristján Hilmarsson
-
Loftur Altice Þorsteinsson
-
Ómar Geirsson
-
Rafn Gíslason
-
Rafn Haraldur Sigurðsson
-
Rauða Ljónið
-
SeeingRed
-
Sigríður Sigurðardóttir
-
Sigurpáll Ingibergsson
-
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is)
-
Sumarliði Einar Daðason
-
Vilborg Eggertsdóttir
-
Þórarinn Baldursson
Sögulegar ræður
Bækur
Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943. Þessi bók mín kom út í nóvember 2011, hefur verið prentuð fjórum sinnum og fæst nú í kilju.
-

Meira
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 158951
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar







